|
Orlof húsmæðra í Eyjafirði Sérhver kona í Eyjafjarðarsýslu sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu er hjartanlega velkomin í ferðir með orlofinu. |
|
21.02.2012 19:43Ferðir 2012Fyrirhugaðar ferðir á vegum nefndarinnar árið 2012 Hrísey - dagsferð .......................................... 16. júní Slóvenía, Portoroz og Ljubljana - beint flug frá Akureyri ................................. 26. júní - 3. júlí Siglufjörður, Fljótin - dagsferð....................... 18. júlí Jökulárgljúfur, Hólmatungur, Hljóðaklettar, Ásbyrgi, Dettifoss - dagsferð ........................ 19. ágúst Vopnafjörður - Borgarfjörður eystri - 2 nætur .......................................................... 31. ágúst - 2. sept. Mývatn - aðventuferð - 1 nótt ...................... 1. - 2. desember Þar sem því miður er takmarkaður sætafjöldi í flestar ferðir okkar er konum bent á að panta sér pláss tímanlega. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst ef áhugi er fyrir ferðunum. Í ferðina til Slóveníu verður að vera búið að staðfesta þátttöku fyrir 26. apríl. Í ferðina til Vopnafjarðar er staðfesting fyrir 1. ágúst. Hafið samband eftir 23. febrúar - eftir kl. 16:00 á daginn. 462 7003 Dóra ? 462 5026 Sveina Stjórnin Skrifað af Sveinu 24.12.2011 11:10JólakveðjaHlökkum til að ferðast með ykkur á næsta ári.Stjórn orlofsins. Skrifað af Sveinu 22.11.2011 12:22Aðventuferð í MývatnssveitFarið verður Umferðarmiðstöðinni kl 12:00 á laugardaginn. Þorgeirskirkja, Dimmuborgir, Vogafjós, Jarðböðin, Jólahlaðborð. Sunnudagur: Fuglasafnið, Hveravellir, Heiðarbær Áætluð heimkoma á sunnudegi er á milli 15:00 og 16:00 Stjórnin. Skrifað af Sveinu 20.10.2011 22:18AðventuferðVegna fjölda áskorana ætlum við að bjóða uppá fjórðu aðventuferðina í Mývatssveitina helgina 26.-27. nóvember. Allt eins og venjulega; Dimmuborgir og heilsað uppá jólasveinana, jólamarkaður í jarðböðunum og hið árlega jarðbað, jólahlaðborð og gisting á hótel Gíg. Eitthvað spennandi gert á sunnudeginum áður en haldið verður heim. Þátttaka tilkynnist fyrir 2. nóvember til: Sveinu 462 5026 Greiða þarf staðfestingargjald í síðasta lagi 4. nóvember inn á reikning 0162-26-1405 kt. 700982-1149 Stjórnin. Skrifað af Sveinu 20.09.2011 13:38Suður EnglandSuður England 29.-3.okt. 2011Skemmtileg og fræðandi ferð. Ein af vinsælustu ferðum okkar. Sjáið borgir og þorp í hjarta Englands. Skoðunarferðir á hverjum degi. Allar ferðir og hálft fæði innifalið. Fararstjóri: Emil Örn KristjánssonSkrifað af Sveinu 22.08.2011 18:48Sprengisandur - KjölurFerðatilhögun er eitthvað á þessa leið: Lagt í hann kl. 12:00 frá Umferðamiðstöðinni með nesti, kaffi /te á brúsa.
(Fáum nesti á heimleiðinni er við förum Kjöl og þá er gott að hafa brúsa meðferðis) Haldið austur á bóginn inn í Bárðardal. Ekið yfir Sprengisand - nesti borðað á leiðinni, stoppað í Nýjadal ef þar er opið enn til að fá að fara á klósett og snæða nestið. Áætlaður tími er 6-7 klst. Sennilega u.þ.b. 350 km. Gist í hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum og þar er kvöldverðarhlaðborð í boði. Þar er vínveitingaleyfi. Ekki er verra að hafa söngbókina með sér - því líklega þurfum við að skemmta okkur sjálfar. Gamansögur eru líka vel þegnar og alls konar leikir og uppákomur af öllu tagi. Haldið af stað og ekið vítt og breitt um Suðurland. Komið við í Skálholti, Þjóðveldisbænum (reyndar ekki opinn) og Stöng Flúðum, og Sólheimum í Grímsnesi þar sem við snæðum hádegismat og fræðumst um staðinn. Gist síðan á Hótel Geysi -laugardagskvöldið. (við ætlum ekki að koma allt of seint í náttstað) Þar ætlum við í létta göngu um Haukadalsskóg, sjá margmiðlunarsýningu og fara í heita potta fyrir kvöldmatinn. Muna því eftir sundfötunum. Það er boðið upp á nudd (heilnudd, svæðanudd) 5000 kr. sem tekur 1 klst. Einnig er hægt að fá lithimnulestur 3000 kr. og tekur hann ½ klst. Kvöldverðurinn verður eitthvað spennandi ásamt göróttum drykkjum. Haldið af stað norður Kjöl - við kaupum kaffi á brúsa og samlokur til að hafa með okkur, stoppum í Kerlingarfjöllum og /eða á Hveravöllum ef þar er enn opið. Hér getum við reiknað okkur a.m.k. 5 tíma - þetta eru 300 km. frá Geysi. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að hálendisvegirnir okkar eru ekki greiðfarnir og því verðum við bara að taka því rólega og hafa gaman af því að vera saman - eins og ævinlega. Kveðjur bestar Stjórnin
Skrifað af Sveinu 15.08.2011 11:37Ferð í FjörðurFarið verður frá Umferðarmiðstöðinni sunnudaginn 21. ágúst kl. 10:00 Ekið verður að Hléskógum þar sem leiðsögukonan Birna Friðriksdóttir verður tekin með í rútuna og síðan farið út að sjó í Hvalvatnsfirði, gengið verður að Tindriðastöðum. Hressing verður svo á bakaleiðinni að Gili þar sem konur í kvenfélaginu Hlín sjá um. Komið verður við á Grenivík og farið í Gallerí Miðgarða. Stjórnin Skrifað af Sveinu 27.06.2011 15:49FlúðasiglingFlúðasiglingin frá Bakkaflöt í Skagafirði fellur niður vegna lélegar þátttöku. Stjórnin Skrifað af Sveinu 01.06.2011 13:35Ferð á Langanes 18. - 19. júní.Haldið af stað frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10. Snæddur hádegisverður í Skúlagarði og ekið eins og leið liggur um hinn nýja veg um Hófaskarð og haldið út á Font. Kvöldverður og gisting að Ytra-Lóni u.þ.b. 10 km frá Þórshöfn. Heitur pottur er á Ytra-lóni. Stoppað í Skúlagarði og snæddur aftur hádegisverður í Skúlagarði á sunnudeginum áður en haldið er heim. Þess má geta, að það er fyrirhuguð list- og menningarvika að Ytra-Lóni 6.-12.júní og verður því væntanlega margt skemmtilegt til sýnis sem útbúið hefur verið þar í listavikunni. Nokkur sæti laus, hafið samband. Verð ferðarinnar er 14.000 kr. Stjórnin. Skrifað af Sveinu
|
TenglarSlóvenía, Portoroz og Ljubljana eftir 1 mánuð 3 daga Siglufjörður, Fjótin, dagsferð eftir 1 mánuð 26 daga Jökulsárglúfur, Hólmatungur, Hljóðaklettar, Ásbyrg eftir 2 mánuði 27 daga Vopnafjörður Borgarfjörður eystri eftir 3 mánuði 8 daga Aðventuferð í Mývatnssveit eftir 6 mánuði 9 daga |